Description
Jarðvegskort af Íslandi frá árinu 1959.
Kortið er prentað á mattan 240 gr. hágæða pappír.
Stærð kortsins er 100 (breidd) x 70 (hæð) cm.
Þetta kort er úr ný útgefinni seríu korta frá Maps of Iceland. Kortið er unnið með aðstoð nýrra og mjög nákvæmra þrívíddar líkana af Íslandi. Ofan á þrívíddarlíkönin eru svo notuð hin svonefndu Atlaskort, sem unnin voru á árunum 1903-1939 af Danska herforingjaráðinu og Landmælingastofnun Dana (Geodætisk Institut).
Maps of Iceland er vörulína af íslenskum korta plakötum sem eru bæði hönnuð og prentuð á Íslandi. Hægt er að fá nokkrar tegundir Íslandskorta ásamt kortum af fjölmörgum landshlutum í skala 1:100.000 (Atlaskort) og 1:250.000 (Landshlutakort).
Related